Stofnað 2004

Brynjuís

Þrjár næturvaktir eftir og svo 3 vikna frí. Gleði gleði. Ætli ég keyri ekki norður á Akureyri einhvern tíma um miðja næstu viku og hangi svo jafnvel þar framyfir verslunarmannahelgi. Hver veit. Það er þá eins gott að það verði skemmtilegt þar. Suss.

Annars er ekkert að frétta. Tja, jú B12 sprauturnar eru farnar að kikka inn. Það er óneitanlega skemmtilegt að vera kominn með matarlyst í fyrsta skipti í 3 eða 4 mánuði. Það er eitthvað.

Leiðindablogg. Það vantar bara að ég fari að blogga um hægðir eða eitthvað. Átti t.d. fínar hægðir í vinnunni síðustu nótt - áferð og klísturleiki minnti mest á súkkulaðiís úr Brynju. Bragðið hefur eflaust ekki verið ósvipað heldur, þó ég hafi ekki sannreynt það.

Þarna. Þetta var andartakið þar sem þetta blogg fór í ruglið. Best að hætta.

Athugasemdir:

Blogger Ingvar Á. Ingvarsson:
Luuvvely
13. júlí 2007 01:11 
Anonymous Ágúst:
Ég mæli með Norðurferð sem fyrst...þetta má ekki bíða svo lengi..þriðjudagurinn í síðasta lagi. Vertu sem lengst og það er gott að matarlystin er kominn,því þá ætla ég að grilla ofan í þig á þrítugsafmælinu mínu..sýnist mér svo...
Vertu í bandi..
Kv..Gústi Svangi
13. júlí 2007 08:02