Stofnað 2004

Tyggjó

Hressandi að vera í fríi, slappa af, spila körfubolta í fyrsta skipti í einhver ár, mara í hálfu kafi í sundlaugum, heimsækja óáhugaverð söfn, vaða um í skóglendi, drekka kaldan bjór og reykja volgar sígarettur. Akureyri er alltaf ágæt.

Mig hefur dreymt ákaflega undarlega drauma undanfarið. Ég man þá alltaf þegar ég vakna en er svo búinn að gleyma þeim þegar ég ætla að rifja þá upp seinna um daginn. Þannig að ég get ekkert farið nánar út í þá hér. Það var þá til mikils að minnast á þá yfir höfuð. Piff.

Annars hef ég svo sem ekkert merkilegt að blogga um. Vildi bara nota tækifærið fyrst ég fann nettengingu á förnum vegi og skrifa eitthvað. Hver veit nema maður hendi svo inn einhverjum myndabloggum úr símanum - ég veit að æstir aðdáendur mínir bíða þess í ofvæni.

1408 er hörmuleg mynd.

GSUSM?: Þegar ég var 6 ára stakk ég notuðu tyggjói bak við eyrað til að geyma það meðan ég væri í kennslustund. Það festist í hárinu og kennslukonan þurfti að klippa hárlokk í burtu. Þegar ég kom heim sagði ég mömmu að ég hefði dottið á tyggjó á gangstéttinni. Hún trúði því, held ég.

Athugasemdir: