Stofnað 2004

Ellefti september

Já, ellefti september. Rétt að halda upp á að 34 ár eru síðan Pinochet komst til valda í Chile.

Reyndar hef ég nagandi tilfinningu um að eitthvað fleira hafi gerst á þessum degi, en kem því ekki fyrir mig.

GSUSM™: Ég á mjög erfitt með að vera kyrr meðan ég tala í síma, þarf helst að labba um. Er ég fatlaður?

Tónlist: If You're Into It. Það er bara ekki hægt að fá nóg af Flight of the Conchords.

Athugasemdir:

Anonymous Þórður:
Ég get einatt ekki heldur verið kyrr þegar ég tala í síma.

Ég segi að þessi fína sjónvarpssjóræningja-útgáfa af öllum lögum Flight of the Conchords sé frábær partíplata, ef fólk er til í að gefa því séns, mahafakkers!
11. september 2007 18:11 
Anonymous þórður:
Wikipedia segir þennan sama dag:
1990 - U.S. President George H. W. Bush delivers a nationally televised speech in which he threatens the use of force to remove Iraqi soldiers from Kuwait, which Iraq had recently invaded. He mentions the term "New World Order" in this speech for the first time, which is also named "Towards a New World Order".

og skandall skandala:

1998 - Independent counsel Kenneth Starr sends a report to the U.S. Congress accusing President Bill Clinton of 11 possible impeachable offenses.
11. september 2007 18:15 
Blogger Óli Sindri:
Já, sumir kunna bara ekki gott að meta í partítónlistargeiranum. Ég bíð bara eftir heilli stúdíóplötu; náði mér í The Distant Future EP-inn með þeim, en þar eru bara 5 lög og þau duga skammt.
12. september 2007 03:29 
Anonymous apli:
ég vil þakka þér fyrir það ólafur sindri, að vekja athygli lesenda þinna á flight of the conchords sem ég altént hef skemmt mér fáránlega yfir síðustu daga. annars er það spurning um ofurlítið drukk nú um komandi helgi bróðir? helgi bróðir. nei.
12. september 2007 20:21 
Blogger Óli Sindri:
Verði þér að góðu, Apli minn. Ég held að ofurlítið drukk sé ekki spurning heldur staðreynd. Í það minnsta mun ég gera mitt besta í þeim efnum. Helgi bróðir kemur kannski líka. Nei.
12. september 2007 20:54