Stofnað 2004

Hreinrækt í Danmörku

Símar með læsingu tengda við áfengismæli hljóta að vera framtíðin. Þeir sem kannast við fyrirsögnina á þessari færslu vita hvað ég er að tala um.

7-9-13 er furðulegur klúbbur. Hrá steinsteypa og snaröfugt fólk dansandi uppi á barborði. Mér er til efs að ég eigi eftir að stunda þann stað mikið í framtíðinni. Andrúmsloft eins og í ólöglegu reifpartíi í vörugeymslu. Heillandi.

Djöfull langar mig í sushi akkúrat núna. Löðrandi í wasabi. Ég þarf að skipta út vinum mínum fyrir fólk sem fílar sushi, þetta gengur ekki lengur.

Tónlist: Miles Davis.

Athugasemdir:

Anonymous Alexandra:
Heyrðu! Ég hef bara aldrei prófað sushi...hmm....
16. september 2007 19:28 
Anonymous Elvar:
Ég bæði þekki vel til fyrirsagnarinnar og er mikill unnandi Sushi og því er óþarfi að skipta mér út, vona ég.
Mikið vorum við sætir saman, skítugir á hipstera sushi bar í Kaupmannahöfn hérna um árið. Og djöfull var túnfiskurinn góður.
17. september 2007 10:47 
Blogger Ingvar Á. Ingvarsson:
Sushi er frábært.
17. september 2007 10:55 
Anonymous apli:
djöfull er ég löðrandi í wasabi.
19. september 2007 19:40 
Blogger Óli Sindri:
Ókei, Elli, þú færð að halda þinni stöðu. Ingvar líka. Alexandra þarf samt að prófa sushi. Annars fer hún af vinalistanum. Apli helst á listanum fyrir að maka sig út í wasabi.

Rándýri hipstera-sushi-staðurinn í Kaupinhafn var svo sannarlega mögnuð upplifun. Og ég skora á hvern sem er að reyna að halda því fram að það sé eitthvað samkynhneigt við það að sitja saman, tveir karlmenn, og deila með sér kynörvandi fiskihrognum og áfengi við flöktandi kertaljós. Því það er það ekki.
22. september 2007 01:04