Stofnað 2004

Skorpulifur

Ég veit ekki hvort það var svefnleysi, sú staðreynd að ég hafði ekkert borðað, B12 skortur eða hassreykurinn sem lá í loftinu á Nasa. Ef til vill blanda af því öllu. Allavega var ég engan veginn að höndla áfengi í gærkvöldi - eða nokkurn skapaðan hlut. Ég hef að minnsta kosti oft skemmt mér betur, enda var ég hundleiðinlegur og ældi svo í þokkabót. Djöfulli yndislegt.

Drykkjuleyfi væri sniðugur hlutur. Það er fáránlegt að fólk fái að kaupa áfengi og drekka það um leið og það verður tvítugt, án nokkurrar kennslu eða prófskírteinis. Ég sé fyrir mér stíft bóklegt og verklegt prógramm. Þegar maður yrði 19 gæti maður fengið æfingaleyfi og skroppið á pöbbinn með mömmu og pabba. Drykkjuskírteinið yrði svipað og ökuskírteini; mismunandi áfengisflokkar. Maður þyrfti að taka meiraprófið til að mega kaupa eitthvað sterkara en 20%. Prófið væri líka skemmtilegt; eftirlíking af leigubílaröð niðri í bæ þar sem prófdómari sprautar á þig með sturtuhaus og blæs yfir þig sígarettureyk í klukkutíma, þurfa að halda á 3 fullum bjórum upp stiga á Kaffibarnum eða Ellefunni án þess að sulla niður. Og að sjálfsögðu væri falleinkunn fyrir að æla.

Þetta yrði klárlega til mikilla bóta fyrir drykkjumenninguna. Ölvunarakstur myndi líklega snarminnka þar að auki, þar sem það er miklu skelfilegra að missa drykkjuskírteinið en ökuskírteinið.

Djöfuls rugl. Ég er þreyttur, svangur og með hausverk. Ætla að gera eitthvað í því að lagfæra það.

Tónlist: Major Organ and the Adding Machine. Stórfurðulegt flipp frá Jeff Mangum úr Neutral Milk Hotel.

Athugasemdir: