Viðtakandi er fluttur
Búinn að vera að vinna síðustu 16 tíma eða þar um bil. Nú fæ ég 8 tíma hvíld fyrir næstu törn. Vá, þetta verður skemmtileg vika. Þvílíkt snilldarplan hjá mér að vinna aðra vinnu sömu vikur og ég er á næturvöktum. Ekki séns að það komi í bakið á mér.
Ég er farinn að sofna yfir Kenny vs. Spenny. Alveg þess virði að rifja þá þætti upp meðan maður bíður eftir 4. seríu. Líklega það eina með viti sem komið hefur frá Kanada. Ja, kannski fyrir utan Leonard Cohen. Og Arcade Fire. Og eitthvað. En allavega eina sjónvarpsefnið, það er nokkuð ljóst.
Fokk, ég er farinn að sofa.

