Grís
Ég lét verða af því að fara út í sjoppu og kaupa mér nammi eftir að ég skrifaði síðustu færslu. Eftir nokkra bita rifjaðist upp fyrir mér að mér finnst nammi bara alls ekkert gott - raunar frekar vont. Ég er kannski ekki óléttur eftir allt saman.
MySpaceið mitt er í einhverju fokki, allavega í Firefox, og ég nenni ekki að laga það. Kalla þetta bara list og segi að það eigi að vera svona. MySpace er asnalegt kerfi.
Svarið við gátunni ógurlegu í síðustu færslu var hálft komið. Meðan Queen var að taka upp fyrstu plötuna tóku þeir upp tvö ábreiðulög í hjáverkum; I Can Hear Music eftir Beach Boys og téð Goin' Back. Þetta var gefið út á smáskífu. Hins vegar fannst fólki stíllinn á þessum ábreiðum of fjarri því sem fyrsta platan boðaði, svo ákveðið var að gefa smáskífuna út undir dulnefninu Larry Lurex (sem var vísun til Gary Glitter). Þar er sú tenging. Gilmore Girls tengingin er einföld; Goin' Back var samið af Carole King sem samdi líka þemalagið í þessum æðislega sjónvarpsþætti.
Ég hef ekki hugmynd um neina tengingu við Orkuveituna, hins vegar.
Ég er farinn að bora í nefið.
