Stofnað 2004

Húðsepi

Megasartónleikarnir í Höllinni voru frábærir. Ég ætlaði reyndar ekki einu sinni að fara, var búinn að ákveða að þetta væri fokking dýrt. En rétt fyrir mánaðamót frétti ég að það væri búið að kaupa miða fyrir mig fyrir löngu. Sem var ágætt, því tónleikarnir voru þeir bestu sem ég hef heyrt með Megasi - og hef ég heyrt þá nokkra. Er ekki frá því að þeir slái við bæði Drögum að sjálfsmorði og upprisu. Kallinn í fantaformi og hljómsveitin óaðfinnanleg. Settlistinn var líka kræsilegur. Gef þessu 4 og hálfa bjóra af fimm mögulegum.

Þetta er þriðja árið í röð sem ég er að vinna meðan Airwaves er. Botnlangatota. Fullt af dóti sem ég hefði verið til í að sjá, en í staðinn sé ég ekkert nema sofandi þroskaheft fólk.

Brass Eye er frekar fyndið dót. Verð að þakka Dodda fyrir að kynna mig fyrir því á síðustu Humarhátíð, sem varð til þess að ég ákvað að henda DVD disknum með í síðustu Amazon pöntun. Svo kostaði hann bara 4 pund. Ódýr dýrindi. Ódýrindi.

GSUSM™: Ég sakna þess hálfpartinn að fara á fáránleg fyllirí, æla í glös, hálffótbrjóta mig við að detta af barstólum eða á frystikistur og vakna með fjólubláan maskara í skegginu og sígarettuösku í augnkrókunum. En, alas, ég er víst orðinn fullgamall til að pulla slíkt lengur án þess að líta út eins og viðbjóðslegur róni. Sem ég reyndar gerði eflaust líka þá. En já. Fokk.

Tónlist: Paradísarfuglinn með Megasi, tekið upp í Laugardalshöll 13. október - í hörmulegum hljómgæðum á símann minn.

Athugasemdir:

Anonymous Elvar Berg:
Ég sakna þess að fara á fáránleg fyllerí með þér, eða yfirhöfuð að fara á fyllerí. Ég hef varla bragðað áfengi í yfir mánuð en það verða gerð bragarbót á því um næstu helgi. Ójá.
Þú kannski lánar mér Brass Eye einhverjn daginn.
21. október 2007 09:46 
Anonymous apli:
djöfulli er þetta orðið fínt hjá þér bróðir, þótt ég viðurkenni það svosem að ég hefði viljað sjá þig allsberan á spássíunum.
23. október 2007 22:09 
Blogger Óli Sindri:
Takk fyrir það, Apli minn. Ég forritaði síðuna þannig að spássíunektarmyndirnar birtast á sérstökum helgidögum kirkjunnar og öðrum tyllidögum.

Hver veit svo nema við endurupplifum gamaldags fáránlegt fyllirí um næstu helgi, Elli. Það væri næs - ógeðslega næs.
24. október 2007 19:36