Stofnað 2004

Kryppa

Ég svaf í tæpa 16 tíma síðustu nótt - fyrstu nóttina í rúma viku sem ég sef meira en 4 eða 5 tíma í röð. 16 tímar eru samt kannski fullmikið, því í stað þess að vera endurnærður er ég bara með hausverk, þurr augu og hár sem stendur 15 sentimetra út í loftið að aftan.

Hellingur sem ég nenni ekki að skrifa um, svo ég sleppi því. Þetta er hundraðasta bloggfærslan á þessari síðu, samkvæmt Blogger. Magnað. Það þýðir að ég skrifa innihaldslausa færslu að meðaltali á 12 daga fresti, ef stærðfræðin bregst mér ekki.

Og já, af hverju í ósköpunum samþykkti ég að vera öryggistrúnaðarmaður á sambýlinu? Hefði ég vitað að því fylgdu 6 tíma fundir á Grand Hótel, skýrslugerðir og önnur almenn leiðindi hefði ég haldið mig fjarri. Fokksjitt.

Viðbót tveim tímum seinna: Ég er ekki hrifinn af sælgæti, finnst það yfirleitt vont. En akkúrat núna hef ég furðulega löngun til að skreppa út í sjoppu og kaupa mér slíkt. Kannski af því ég sé fram á að þurfa að vaka fram eftir nóttu og nördast við vefsíðugerð og krapp. Hvað er í gangi? Er ég óléttur? Jesús.

GSUSM™: Ég horfi stundum á Gilmore Girls.

Tónlist: Goin' Back með The Byrds. Bónusstig og bjór handa þeim sem bendir á tenginguna við Queen. Tveir bjórar fyrir þann sem tekst að tengja þetta líka við Gilmore Girls. Þrír bjórar fyrir þann sem tekst líka að tengja þetta við Orkuveitu Reykjavíkur. Ég veit ekki hvernig ætti að fara að síðustu tengingunni, en hinar tvær eru vel mögulegar.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Ég ætla að fá bjórinn!

Tenging við Queen: Larry Lurex flutti þetta sama lag , blásnu úr barka Bulsara.

Tenging við þarna stelpuþáttinn sem þú ert svo hrifinn af: Ehh... hún þarna bratz-stelpan hefur ummyndast í týnda soninn í þáttunum og horfið aftur til fyrra lífs eftir að hafa ráfað um í villu.

Tenging við OR: Augljós. Þeir hafa svikið stjórnendurna sína um millllljónir og þar með gone back on their words.

Keli danski
10. október 2007 09:52 
Blogger Óli Sindri:
Tja nje. Hálft bónusstig og lítill bjór fyrir lélega útskýringu á Queen tengingunni. Hitt er úti á þekju.

Ekki að ég búist við réttu svari. Enda kommentar aldrei neinn hérna. Hnuss.
10. október 2007 20:24