Merkilegt
Ég man ekkert eftir að hafa skrifað bloggfærsluna á undan þessari. Sem hlýtur að þýða að hún sé sönn.
Ég held ég hafi brákað á mér olnbogann niðri í bæ síðustu nótt. Djöfuls óþægindi.
Ég ætla að nota tækifærið og þakka Ella fyrir gott partí á föstudagskvöldið. Heimapartí sem endist til rúmlega 5 um morguninn er gúdsjitt. Enn meira gúdsjitt er að fara yfir myndirnar á símanum sínum daginn eftir og finna myndaseríu af sjálfum sér og Apla hálfberum að neðan að syngja Sam Cooke lög. Áhugavert.
Ég er að velta fyrir mér hvort ég ætti að panta flug til Danmerkur á næstu dögum. Hmm. Ég ætla að velta því fyrir mér ögn lengur. Og fá mér eins og einn bjór til að ljúka góðri helgi.

