Stofnað 2004

Snoppufríðindi

Perrasvipur!

Ég er fúll út í MSN fyrir að leyfa ekki hreyfimyndir sem display myndir. Ég sem var búinn að eyða gífurlegum tíma og orku í að búa til þessa frábæru hreyfimynd hérna til hliðar, en hún hreyfist ekkert í MSN. Svekkelsi.

Alabama Thunderpussy á Gauknum voru fínir tónleikar. Redneck rokk. Hreint ágætt. Drakk kannski helst til mikið. Allavega það mikið að ég var farinn að stuðla að uppreisn leigubílstjóra á leiðinni heim. Eyddi löngum tíma í að ræða við leigubílstjórann um það hvernig núverandi kerfi, þar sem leigubílstjórar þurfa að tilheyra stöð og geta ekki verið sjálfstæðir, væri í raun kommúnískt. Ég held að hann hafi verið orðinn sannfærður undir lokin um að þetta væri allt satt hjá mér. Ég sé fram á stóra leigubílstjórabyltingu á næstunni.

Talandi um kommúnisma; ég var að fá skemmtilega hettupeysu í pósti. Pönslænið er samt ekki alveg að virka jafn vel á íslensku og það gerir á ensku. Ojæja.

Ég dustaði rykið af stórkostlegum forritunarhæfileikum mínum við að endurhanna þessa síðu. Uppáhalds fídusinn minn er klárlega að geta valið haus að eigin vali á síðuna. Mergjað dót. Bakgrunnslitur að eigin vali er líka sniðugt. Ohh, ég er svo sniðugur. Dótið sem fylgist með því hvað ég er að spila er meira að segja líka hannað af mér. JavaScript forrit sem les XML skrá sem crontab á servernum mínum afritar frá Last.fm á 10 mínútna fresti. Þetta er líklega það nördalegasta sem ég hef skrifað á þetta blogg - og ég hef greinilega of lítið að gera á næturvöktunum. Splæsti svo meira að segja 583 krónum til að tryggja mér olisindri.com. Enn nördalegra.

GSUSM™: Ég er búinn að drekka 3 lítra af appelsínusafa í dag.

Athugasemdir:

Anonymous Elvar Berg:
mjög fallegir pastellitir hjá þér. Rall á morgun?
26. október 2007 00:23 
Blogger Óli Sindri:
Pastellitir hafa ekki notið sannmælis til þessa. Ég er hrifnastur af þessum bleika, og þýska stílnum af haus við.

Rall? Jájá.
26. október 2007 01:29 
Anonymous Þórður Ingvarsson:
Svaka sneddí.

É´þakka fyrir samveruna á þrumupíkunum, og aukinheldur mók- og makindalegan mánudag. Sjitt.

Takk fyrir selebrítibolinn líka, ælovitt.

Og bara takk fyrir.
26. október 2007 19:38 
Blogger Óli Sindri:
Takk, sömuleiðis. Ljúft mánudagskvöld og frussandi blaut þrumupíka á miðvikudeginum. Gott stöff.
29. október 2007 00:33