Stofnað 2004

Upp með mér

Sjálfur Kristian Guttesen bara búinn að semja ljóð um ómerkilega mig. Reyndar hef ég hann grunaðan um að hafa tileinkað mér þetta ljóð þónokkru eftir á, þar sem það er ekki nýtt, en hin mikla uppljóstrun hans á því að ég skuli vera Mengella er hins vegar "ný". Að vísu stolin frá Gísla, en við fyrirgefum svoleiðis. Ég er enda þekktur fyrir hégómleika og þykir mikil fróun í að sjá nafnið mitt á vefjum stórskálda.

Nóg um það. Fékk mér langþráð sushi í gærkvöldi. Sushibarinn á Laugavegi er með skuggalega gott sushi. Ekkert sérlega ódýrt hins vegar, og stór galli að ekki skuli vera hægt að fá sér bjór með. En þá röltir maður bara á Prikið eftir á, fær sér bjór þar og fylgist með 17 ára krökkum þykjast vera fullorðnir.

Blabla. Ég þarf að nota helgina vel þar sem ný 7 daga vinnutörn hefst á sunnudagskvöldið. Megas og Senuþjófarnir annað kvöld, en annað óráðið. Suss.

Tónlist: Adieu Capital eftir Megas. Frábær texti.

Athugasemdir:

Anonymous Þórður Ingvarsson:
Omg! Óli, veistu. Mig langar til að snerta þig. Verst að ég skuli vera 400 kílómetra í burtu. Omg. Þú átt þetta inni hjá mér gæskur.
13. október 2007 07:34 
Anonymous apli:
ég hef skrifað helling af ljóðum um þig, en hef þau bara fyrir mig.
13. október 2007 18:16