Stofnað 2004

Fríir drykkir bragðast betur

Úff. Líkaminn er búinn að eyða deginum í að mótmæla harðlega þeirri ákvörðun minni að fara út á lífið í gær. Þynnka er vitagagnslaust fyrirbæri. Reyndar verður að viðurkennast að það hefði alveg verið hugsanlegt að drekka aðeins minna. Svona eftir á að hyggja.

En djöfulli var þetta samt skemmtilegt kvöld. Minnir mig.

Það er fyrst núna, þegar Mengellufárið er að baki, sem maður áttar sig almennilega á því hversu mikill tímaþjófur þetta var. Ég þarf að finna mér hobbí eða eitthvað til að fylla skarðið. Spurning hvort maður geti skráð sig á námskeið í ljósmyndagreiningu hjá Agli. Annars er svo sem fullt af hlutum sem hafa setið á hakanum upp á síðkastið sem er fínt að fá tóm til að sinna; t.a.m. að svipast um eftir nýrri vinnu. Tek við hugmyndum.

Fari það hoppandi sem, ég er farinn aftur að leggja mig — þetta gengur ekki.

Athugasemdir:

Anonymous apli:
djöfull var ég að fíla gosbrunninn, og það hversu skítugar buxurnar mínar voru í morgun. mundu eftir james hunter bróðir, góð soul.
18. nóvember 2007 23:09 
Blogger Alexandra:
Já, þetta partí var frekar skemmtilegt.
19. nóvember 2007 09:56 
Blogger Oskar Petur:
Hehehe, "gera athugasemd"!

Þetta hefur væntanlega verið strandpartíið v. Tjarnargötu.

Rosalega er ég annars glaður að sjá hvaða músíkk er í spilun á last.effemminu þínu þessa stundina.
22. nóvember 2007 10:54