Haarschnitt
Fyrstu mistökin voru augljóslega að halda eitt augnablik að það gæti verið góð hugmynd að spara sér tíma og fara bara í klippingu í Breiðholti.
Önnur mistökin að snúa ekki við og segjast hafa valið rangar dyr þegar kom í ljós að hárgreiðslumeistarinn var sjálfur klipptur eins og Hitler.
Þriðju og kannski stærstu mistökin að glopra út úr sér að „mér er í raun alveg sama um síddina, svo lengi sem útkoman er boðleg”. Ég reyndar bjóst við að umrædd sídd yrði nokkuð júniform svona yfir höfuðið — ekki stutt í hliðunum með pólsku fuglshreiðri á toppnum.
Eftir að vera búinn að reykja kartonið af Marlboro 100's úr fríhöfninni finnst mér eins og ég sé að kveikja í öskubakkastubbum þegar ég reyki eðlilegar sígarettur.