Stofnað 2004

Quark!

Danmörk var mjög næs. Hendi kannski einhverjum myndum úr ferðinni inn á Mæspeis eða eitthvað ef ég nenni. Eins og staðan er akkúrat núna, hins vegar, nenni ég óskaplega litlu.

Gaman líka að koma beint heim í alvöru netdrama — Mengella bara búin að afhjúpa sig og svona. Skemmtilegust eru þó viðbrögð Ruddanna. Þetta eru langræknir andskotar. „Ritstjórn” Mengellu þarf eflaust að passa sig á að taka stóra sveiga framhjá mótorhjólaumboðum, hjólhýsum og Bar 11 hér eftir.

Ég sé enn eftir að við Stebbi skyldum ekki hafa snætt á pólsk/þýska veitingastaðnum í Flensburg. Er til verri möguleg matarmenningarblanda en það? Verð að tékka á því næst bara; rússneskt gúllas með Quark á pólsk/þýskum veitingastað. Fusion.

Mig blóðlangar í eldbakaða pizzu. Held hreinlega að ég gangi í að gera eitthvað í því.

Á ég virkilega að trúa því að það hafi ekki verið til neinn annar íslenskur texti við If You're Happy and You Know It... heldur en „Sértu glaður skaltu klappa höndunum”? Bölvaður leirburður. Af hverju minnir mig endilega að til hafi verið einhver önnur útgáfa sem innihélt meira af Jesúsum og dóti? Bara ef ég gæti grafið upp Kátt í kirkju kassettuna síðan úr sunnudagaskólanum í gamla daga. Seisei.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Dr. Gunni afhjúpaði þig líka.
12. nóvember 2007 13:39 
Anonymous Elías Halldór:
"De var allesammen jomfru da vi kom" er textinn sem er yfirleitt sunginn. Eða hvað það nú var "det var brændevin i flasken da vi kom".
12. nóvember 2007 14:35 
Anonymous Elvar:
Það er einhver Egill Helgason að gefa það í skyn að þú, eða sem Mengella, sért rotþró bloggheimana, kannastu eitthvað við kauða?
13. nóvember 2007 16:40 
Blogger larush:
Þessi færsla hefur verið fjarlægð af höfundinum.
13. nóvember 2007 17:04 
Blogger larush:
hvaða lenska er það á ísland að þegar miðaldra krullaðir karlmenn fá mikla athygli of lengi byrjar ruglið að streyma frá þeim, að tengja saman einhvern bloggara og líklega það ljótasta sem ég hef lesið frá rasistum (kallandi lítil börn skítaseiði og þaðan af verra) - hvað þá að tengja herramann við þessa vitleysu.. iss piss (eitthvað smá klikk hjá mér þarna áðan:))
13. nóvember 2007 17:05