Reykingar valda skalla
Það skemmtilega við að velja yfirleitt á færslur fyrirsagnir sem tengjast innihaldinu ekki vitund er að ég fæ óeðlilega mikið af heimsóknum gegnum Google frá fólki sem vill t.d. fræðast um refaskyttur, lamadýr eða gláku. Gott á það.
Það hlýtur að vera jákvætt ef það góðir hlutir eru að gerast í kringum mann að hættan á að tapa öllum rafrænum gögnum síðustu tveggja ára og leiðindaviðgerðir á bílhræinu mínu virðast húmbúkk og hjóm eitt.
Áhugavert verkefni með þekktum tónlistarmanni (ég líð ekkert neimdropp á þessu bloggi) á teikniborðinu m.a. — sem gæti orðið skemmtilegt. Önnur „verkefni” eru jafnvel enn skemmtilegri en algjör óþarfi að fara ítarlega í þau hér.
En hvað sem því líður ætla ég að fara að leggja mig (á launum) og lesa.
Ooog: hefur fólk í alvöru ekkert betra að gera en eyða öllum vökustundum í „hver er maðurinn” leiki á Moggablogginu? Ég hugsa mér mann.

