Bloggblómstur
Ég vona að ég sé ekki að móðga neinn á Fréttablaðinu. Nei, annars, mér er eiginlega alveg sama — þetta er borðleggjandi; myndin sem var látin fylgja þessari grein minni er hörmung. Eins og fótósjoppverkefni fyrstaársnema í Iðnskólanum. Sem á ekki Photoshop og notaði því Paint. Og drakk tréspíra meðan hann klippti þetta saman. Nei, nei, ég ýki reyndar — það er ekki hægt að blanda saman layerum í Paint. Þetta með tréspírann er samt næsta öruggt.
Andskoti var þetta samt lúmsk aðferð hjá mér til að koma þessum annál á framfæri hér. Ég er ekki þekktur sem athyglissjúkur egórúnkari fyrir ekki neitt.
Næs jól fylgdu notalegri aðventu. Ég bind vonir við nærfullkomin áramót. Vegna þess að mér datt ekkert annað lýsingarorð sem byrjar á n í hug.
Ég fékk í jólagjöf tvær bækur frá útgáfulíkinu Skruddu (í sömu merkingu og bjór- og smjörlíki, ekki líkamsleifar. Og þó.). Ég hlakka mikið til að skrifa um þær hér. Einhvern tímann. Hvorug þeirra var samt Hliðarspor — staðreynd sem sparar mér ferð í bókabúð.

