Stebbi leysir málið
Stefán Friðrik er auðvitað löngu landsþekktur fyrir krassandi fréttaskýringar sínar og eitilharðar skoðanir á málefnum líðandi stundar. Úttekt hans á þessari mynd er engin undantekning. Hann virðist samt vita meira um málið en hann lætur uppi — a.m.k. er hann þess fullviss að farþeginn sé strákur (þrátt fyrir að einungis sé talað um „farþega á barnsaldri” í fréttatilkynningu lögreglunnar og þrátt fyrir að ekkert sjáist farþegamegin utan hvíts ferhyrnings). Svo viss að hann tvítekur þá fullvissu sína í umfjölluninni.
Aukinheldur:
Annars er nær vonlaust að greina hver ökumaðurinn er og auðvitað hefur verið máð út andlit mannsins og stráksins auk bílnúmersins.
Áhugavert. Auðvitað hefur andlit mannsins verið máð út með því að photoshoppa sólskyggni inn á myndina eftirá. Það sér hver maður að það er besta leiðin til að lýsa eftir upplýsingum um mann. Bílnúmerið hefur sömuleiðis verið hulið eftirá. Þetta er allt saman tilraun af hálfu lögreglunnar til að sjá hversu glöggur almenningur er í að bera kennsl á fólk út frá sem allra minnstum upplýsingum.
Annars sýnist mér dagljóst á klæðnaði mannsins að þetta er pólskur farandverkamaður. Hann hefur þá að öllum líkindum rænt barninu (fyrirgefðu, Stebbi — stráknum). Enda myndi Íslendingi aldrei koma til hugar að keyra á algengum umferðarhraða framhjá þessari myndavél á Sæbrautinni. Ekki mér, í það minnsta. Ef einhver héldi því fram að líklega séu til allavega tvær myndir af mér úr sömu myndavél væri sá hinn sami klárlega lygari.

