Grenibaðolía
Ég er ekki viss um að ég bíði þess bætur að hafa sest niður rétt í þessu og séð 10 mínútur af Pressu. Ég gat ekki horft á meira. Þvílíkt endemis rusl. Verðskuldar ekki einu sinni þá tímaeyðslu að skrifa lengri gagnrýni en það. Rusl.
Annars er bölvað andleysi að hrjá mig núna. En það hlýtur að lagast. Þegar lífið lokar hurð opnar það víst glugga. Á sjöundu hæð. Og hrindir manni út. Mikið var þetta viðurstyggileg viðlíking og ber andleysi mínu gullfagurt vitni.
Af því tilefni auglýsi ég hér með eftir andagift. Færið mér hana í athugasemdakerfinu, takk. Besta tilraunin vinnur drykk á öldurhúsi.


