Nytjastefnan
Nýr bakþanki eftir mig á Maurildinu, Vísi og (ótrúlegt en satt) aftan á Fréttablaðinu.
Orðið á götunni er að viðfangsefni pistilsins, sjálfur Rottumaðurinn, sé af vandlátu íslenskufólki kominn — sem eykur enn á vonbrigðin.
Annars er ég staddur í sveitinni og tek því frekar rólega þessa dagana, reyni að borga eitthvað upp í stóra svefnskuld, horfi á House, skrifa í hjáverkum og stelst í bókaskáp bróður míns. Gæti verið verra.

