Stofnað 2004

Ísland fyrir Íslendinga

Það er víst móðins og líklega nauðsynlegt svo athugasemdir endi ekki við handahófskenndar færslur að henda hérna inn færslu um Bakþankann sem ég skrifaði. Ég hef samt takmarkaðan áhuga á að endurbirta hann í fullri lengd svo ég ætla að notast við töfra Veraldarvefsins og færa ykkur tengil í staðinn.

Ísland fyrir Íslendinga!

Það er hins vegar alveg dagljóst að hið göfuga plan „vakna snemma, raka sig og fara í klippingu” hefði verið ákjósanlegra en raunveruleikinn „sofa yfir sig, reykja og mæta of lítið sofinn of seint” hvað varðar myndatökuna sem fylgir heiðrinum. En hverjum er ekki sama.

Athugasemdir:

Anonymous Elías Halldór:
Hví þarf stíll þinn að vera svo nykraður?
17. janúar 2008 14:50 
Blogger Óli Sindri:
Hví þarf ég að hafa einhvern fastmótaðan stíl? Enn fremur, og betri spurning, hví skrifaði ég "Veraldarvefsins" þarna að ofan í stað "Veraldarvefjarins" þrátt fyrir að mér sé seinni útgáfan mun tamari? Ég ætla að kenna kaffileysi um hið síðarnefnda. Ég veit ekki hverju ég get kennt um nykraða stílinn.
17. janúar 2008 15:30 
Blogger larush:
ljómandi og ekki vera með stíl og drekktu meira kaffi og vertu sæll og bless
17. janúar 2008 15:38 
Anonymous hjálmar jónsson:
af sömu afstæðu og þú skrifaðir Verst geymda leyndarmál vefsins?
17. janúar 2008 19:38 
Blogger Óli Sindri:
Mjög líklega.
17. janúar 2008 19:55 
Blogger Carl Berg:
Fólkið í vinnunni hjá mér kvartaði nú aðallega undan því við lesturinn að skilja ekkert um hvað þetta var.. þá er ég að tala um íslendingana. Ég glotti nú bara á meðan sú umræða fór fram og hugsa að það verði nú alltaf þeirra höfuðverkur en ekki þinn,ef það skilur ekki hvað þú skrifar. En það er kanski vænlegra til vinsælda ef "almúginn" skilur hvað þú skrifar...annars veit ég það ekki, ég hafði gaman að þessu..
Kveðjur...Carl Berg
17. janúar 2008 21:23 
Anonymous Maggý:
Fáðu þér stíl!
18. janúar 2008 01:27 
Anonymous Nafnlaus:
...full esóterískt fyrir minn smekk; aðallega vegna þess að þegar ég vissi að ég skildi pistilinn, þá var ég sjálfkrafa kominn í költ-klúbb, ..óafvitandi.

"The Curse of Mengella Strikes Again"
18. janúar 2008 22:37 
Anonymous Þórður Ingvarsson:
Ha?! Full erótískt?

hnjöhnjöhnjö
19. janúar 2008 10:48 
Blogger Jón Örn:
Ég fattaði við lesturinn að ég er ekki nógu vel að mér í blogginu.

Viltu fræða mig?
19. janúar 2008 18:08 
Blogger Oskar Petur:
Hvursu mikið börd-brein, nú ellegar Hermit, þarf maður að vera til að muna ekki munúðarfullar auglýsingar Ornellu?

Verður meira á fimmtudaginn?
21. janúar 2008 15:50 
Anonymous Elvar:
Einhver mannvitsbrekkan á FM var rétt í þessu að segja: ,,Alicia Keys hefur höfuð og herðar í þessum geira.? Ég varð bara að segja einhverjum frá þessu.
21. janúar 2008 19:40 
Blogger Oskar Petur:
Hehe, "hefur höfuð og herðar"!

Minnir mig á kallinn sem sagðist ætla "að slá tvær flugur í sama höfuðið".
22. janúar 2008 09:13 
Anonymous Raggi:
Þetta er bara eitthvað uppskrúfað taut. Fælir frá lesendur.
23. janúar 2008 11:53