Dreyralaug
Ég hef á tilfinningunni að ég hafi skemmt mér dável í gær. Ég er með djúpan skurð á hægra handarbaki og höndin sjálf er líkust uppblásnum latexhanska, svo bólgin er hún. Að auki er ég með myndarlegan skurð fyrir ofan augabrúnina. Hins vegar man ég ekkert hvernig ég fór að því að slasa mig. Það er fjarlægur möguleiki að ég hafi lent í slagsmálum, en þó er öllu líklegra að ég hafi einfaldlega dottið inni á Bar 11. Það er óneitanlega ekki jafn svalt. Þessa skemmtilegu mynd hér til hliðar fann ég svo í símanum mínum áðan. Hún er frá því kl. 8 í morgun, eða þar um bil.

