Stofnað 2004

Serótónínstormur

Facebook hefur eflaust sína kosti. Myndaalbúmið sem leyfir manni að merkja fólk er sniðugt. Og það er frábært að hafa möguleikann á því að senda fjöldapóst — með myndum af vannærðum börnum og hundsrassgötum sem líta út eins og Jesús — á alla vini sína. Vinir í þessu samhengi er í flestum tilfellum fólk sem maður sér sjaldan eða aldrei og man óljóst eftir síðan einhvern tímann í fyrndinni. En fjandinn hafi það að ég nenni að fara í gegnum yfir 40 boð í hin og þessi mistilgangslausu persónuleikapróf og illa forritaða leiki sem krefjast þess að maður bjóði 20 öðrum „vinum” bara til þess að komast að því að af öllum persónum Life Goes On er maður líkastur Corky.

Ekki það, ég á ábyggilega eftir að gera það. Einhvern tímann. Það er ekkert persónulegt ef ég er ekki búinn að bæta þér á listann yfir bestu, svölustu, kynþokkafyllstu, gáfuðustu eða drykkfelldustu vini mína ellegar hef ekki sett inn ofboðslega sniðuga fídusinn sem þú sendir mér. Ég bara nenni því ekki. Eina sem ég nenni hins vegar að gera á Facebook yfirleitt er að spila Scrabble, sjóorrustu eða Risk. Og ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að það sé ekki beint aðalmarkmiðið með síðunni.

Það hljóta að vera til betri leiðir til að drepa tímann á Netinu þegar maður er veikur heima. Ég bind t.a.m. miklar vonir við skemmtanagildi þessa samfélags flassara. Best að tékka á því.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Mowwy is a singew in a band...
13. febrúar 2008 10:45