Stofnað 2004

Tilkynning

Netið hefur verið til almennra og þreytandi leiðinda í dag. Í fyrsta lagi virðist netfangið olisindri@internet.is þjást af einhverri tregðu — nú undir kvöld er ég að fá hálfsdagsgömul bréf í innhólfið mitt og sum bréf sem ég veit ég átti von á hafa ekki skilað sér yfir höfuð. Þurfi því einhver að ná sambandi við mig með tölvupósti mæli ég eindregið með öðru tveggja, Gmail netfanginu mínu eða olisindri.com útgáfunni.

Ég get þó kannski huggað mig við að ég er ekki einn um þessi tölvupóstvandræði. Fréttablaðið hefur, að því mér skilst, verið í sams konar vandræðum í dag. Og undir þeim kringumstæðum þurfti ég að skila af mér bakþanka. Þegar pósttregða á báða bóga og ansi berorður pistill sem ég lagði fram til birtingar fóru saman var útkoman auðvitað dæmd til ólukku. Að endingu neyddist ég til að henda saman neyðarpistli á mettíma og senda á allra síðustu stundu, þar sem óþjál tölvupóstsamskipti og misskilningur gengu af þeim fyrri dauðum. Sá síðari, sem mun líklega birtast í fyrramálið, hefði hins vegar einnig þurft örlítið meiri yfirlegu svo vel væri. En hvað um það.

Hver veit nema ég birti upprunalegu útgáfuna samt við gott tækifæri. Líkast til á Maurildunum.

Athugasemdir:

Blogger Oskar Petur:
Með fullri virðingu fyrir þér (og fínum bakþanka sem ekkert virðist hafa verið skrifaður í flýti!), þá hefur Ragnar Þór algjörlega NEGLT þessa umræðu um málfrelsið í Maurildinu!
29. febrúar 2008 09:22 
Blogger Óli Sindri:
Ég get verið sammála því. Hann á þetta til, strákurinn.
29. febrúar 2008 11:46