Trufflusvín
Beiðnirnar halda áfram að hlaðast inn á Facebook. Æsispennandi. Ég reyndar tók mig til og samþykkti slatta af vinabeiðnum. Hitt bíður betri tíma.
Af rælni kynnti ég mér um daginn brot af sögunni bakvið Valentínusardaginn. Af skemmtilegri tilviljun kom í ljós að fyrstu rituðu heimildirnar um daginn og fyrsta Valentínusarkortið tengdust óbeint, svo úr því varð einhvers konar bakþanki. Afskaplega rómantískur, auðvitað.
Annað sem ég kynnti mér er hið nýja, margrómaða vefsetur Bubba. Ég læt orð kóngsins sjálfs á eigin spjallborði um að segja það sem segja þarf (ég ætlaði að velja brot úr þessu innleggi til að setja hérna, en það er bara svo dásamlegt að ég verð að endurprenta það í heild sinni):
fyrstu árin fyrstu 20 Árin móta þig síðan ertu að soga inn 10 í viðbót þar á eftir vinnur þú úr því sem komið er
hvað er Nýtt hvað hefur þú ekki heirt áðurhvað er nýr hljómur hvað er ný laglína. hvað með nýja Rödd hvað með
Nýt tungmmál BULLBAMÁL.það er sálin í verkinu nýir vinklar á sama hlut
sem skiftir öllu máli að singa um Ástina hlítur að vera það eina sem skiftir MÁLIÁstin er drifkrafturinn allt annað er skuggar sem verða til útaf Ljósinu
er hægt að biðja endalaust um nýt er hægt endalaust að biðja
um nýja Fullnæginu nýja upplifun á henni.Túlkun er ný hverju sinni hvert sinn sem sungið er, sá sem söng í gær
er ekki sá sem singur í dag þar liggur galdurinn falinn
singa aldrei sama lagið einsHvað er Nýt Hvaðan kemur sú krafa að láta koma sér á óvart aftur og aftur
eins og Áinn sem endalaust rennur ný aldrei sama vatnið sem fellur til sjávarverður eithvað Nýt á plötuni Fjórir Naglar
hef ekki hugmynd það en eitt veit ég
þar er sannleikurin eins og hann kom fyrir þá stundina
sem spilað varsálar tónlist er hún ný pönk er það nýt
skítugt Rokk er það nýt
Rokkabillí er það nýt
þjóðlagartónlist er hún ný
kassagítar tónlist er hún ný
veit það ekki í raun alveg sama
en þú finnur þetta alt á henniGleðin í tóninum er driifkrafturinn
sannleikurinn í núinu
orðin endurspeigla það alttþar til annað kemur í ljós þá er núið
minn tími kv Bubbin
Ég get lítið gert annað en vitnað í eitt svarið við innlegginu:
Snillingur að koma hlutunum í orð
Dásemd!
