Stofnað 2004

Flæðirit

Ég gerði strangheiðarlega tilraun til að hafa gaman af bókamarkaðinum sem var að ljúka. Ég fór reyndar ekki fyrr en á lokadeginum og eyddi merkilega stuttum tíma þar. Raunar einungis sem svarar þeim tíma sem það tók mig að færast náttúrulega gegnum gangana með færibandinu sem fálmandi hrægammarnir sem voru þarna ásamt mér mynduðu. Ég nenni ekki að kaupa bækur þegar ég þarf að þrýsta mér gegnum hvika mannþvögu bara til að komast að borðunum og skella svo mannbroddum í flísafúgurnar til að ná að staldra nægilega lengi við til að kynna mér úrvalið fyrir ágangi fólks. Svo ég yfirgaf vettvanginn bókalaus, færði mig upp um tvær hæðir og fékk mér bjór.

Kallið mig bókahatandi kapítalista og auðvaldssvín, en ég kýs fremur að borga ögn hærra verð fyrir bækur en fá í staðinn að skoða þær í góðu tómi, rölta um í rólegheitum og gramsa. Nú eða einfaldlega kaupa þær á Netinu. Sem ég hafði einmitt gert viku eða tveimur áður en ég asnaðist á þennan helvítis markað, svo það kom ekki að sök þó ég kæmi tómhentur og hífaður úr Perlunni. Mín beið nefnilega Amazon pakki.

Téður bókapakki er reyndar líklega sá nördalegasti sem ég fengið. Tvær bækur um týpógrafíu, ein um CSS og The Visual Display of Quantitative Information eftir Edward Tufte. Sú síðastnefnda er bók sem ég hef lengi ætlað að eignast. Og nú á ég hana. Það þarf lítið til að gleðja mig.

Stærsti gallinn er auðvitað sá að þessi eina skitna bókahilla sem ég á er löngu sprungin. Ég skil ekki hvað ég er að vilja með að halda áfram að sanka að mér áprentuðum, dauðum trjám. Bókastaflar spretta upp á öllum flötum sem nálgast að vera nokkurn veginn láréttir, kiljur flæða út úr náttborðinu og enn á ég slatta af bókum sem eru í pappakössum í geymslum hér og þar.

Djöfulli væri sniðugt að gerast strangtrúaður og halda góða bókabrennu á öllum ókristilegu bókunum. Það myndi leysa ótal vandamál.

Athugasemdir: