Stofnađ 2004

Uppvakning

Páskahátíđin hefur fariđ afskaplega hátíđlega fram (svo ég ţjösnist tvisvar á orđinu „hátíđ” í einni setningu). Á skírdag tók ég mín fyrstu skref í átt til samkynhneigđar (eđa einhver síđari skref, ţađ er allt saman skilgreiningaratriđi) ţegar ég klippti háriđ á Ragnari bróđur. Hafi einhver furđađ sig á hversu fallegri klippingu hann skartađi í myndbroti Frétta Stöđvar 2 frá Vantrúarbingóinu á Austurvelli ţá er skýringin ofangreind.

Og eins og efnisgreinin á undan ásamt síđustu bloggfćrslu bera til samans vitni um fór föstudagurinn langi í ólöglegt bingó og annađ guđlast. Páskadagur er síđan heilagastur allra ţessara daga, enda var honum eytt í tilhlýđileg verkefni — áhorf tveggja leiđinlegra knattspyrnuleikja, bjórdrykkju, súkkulađiát og dass af svefni til afréttingar eftir viku af nćturvöktum.

Rétt áđur en (helvítis) Liverpool leikurinn hófst stóđ ég reykjandi fyrir utan English Pub. Lalli Johns vatt sér ţá upp ađ mér til ađ óska mér gleđilegrar hátíđar, gefa mér sólgleraugun sín og segja mér sögu af ţví ţegar hann handjárnađi lögreglumann inni á Óđali. Síđan kyssti hann mig bless. Kann ég honum bestu ţakkir fyrir og varđveiti sólgleraugun eins og sjáöldur. Sjáöldrin varđveiti ég reyndar ekkert sérstaklega vel, enda fékk ég einu sinni svćsna augnsýkingu.

Og hér endar ţessi bloggfćrsla, sem er svo leiđinleg og tilgangslaus ađ ég nenni ekki einu sinni ađ lesa hana aftur yfir sjálfur til ađ leiđrétta stafsetningu eđa málfar.

Athugasemdir: