Stofnað 2004

Vændisvænsvæntur

Bakþankinn minn í dag mun eflaust vekja einhver viðbrögð. Þess vegna langar mig að benda á ágætan pistil Lalla um vændi, sem ég kommentaði á. Reyndar finnst mér „hálfvitaskapur karlmanna” fullfyrirferðarmikið atriði í pistlinum, svo jaðri við fordóma í garð karlmanna, en þekkjandi Lalla veit ég að það er ekki útgangspunktur greinarinnar — frekar en að útgangspunktur bakþankans míns sé að vændi sé eðlilegasti hlutur í heimi. Mig langaði einfaldlega að benda á áhugaverða þversögn í máli margra femínista og hvetja til umræðu á öðrum forsendum.

Athugasemdir:

Blogger larush:
Hvítir karlmenn virðast upp til hópa vera stórhættulegar skepnur. Má vera að það séu fordómar að benda á það að ýmislegt í þeirra fari mætti betur fara. Enginn er fullkomin og ég er ekki undanskilinn því - og er þá líkast til fordómafullur í garð kynbræðra minna. Ég vil einfaldlega sjá hugarfarsbreytingu hjá þeim, þó eitthvað sé nefnt "elsta atvinnugrein í heimi" - þýðir það ekki að við getum ekki þróast frá henni.
14. mars 2008 14:43 
Anonymous Elvar Berg:
Er ég svo sjálfhverfur að áætla að þessi saga sé um mig? http://www.konni.is/Smasogur/mai_2007/einkastrid_elvars_bergs.htm Hún er meira að segja skrifuð í maí, og allir vita hvað gerist í maí.
18. mars 2008 11:57 
Anonymous Elvar Berg:
Við nánari eftirgrennslan heitir hann ekki Elvar Berg heldur Elvar Bergur, sem er fáránlegt nafn. Þó má segja að þessi saga sé meistaraverk og greinilega mikil þörf að lesa þetta fagnaðarerindi.
18. mars 2008 12:15 
Blogger Óli Sindri:
Þetta er þræláhugaverð uppgötvun, Elli. Hann virðist meira að segja ekki viss sjálfur um hvað sögupersónan heitir:

" Svona á að gera þetta, fara í hatramt stríð og verja sinn rétt " - sagði Elvar Berg hinn hróðugasti

Né er hann góður í stafsetningu. En sagan er pottþétt um þig. Verst að ég nenni ekki að lesa hana. Er hún góð?
24. mars 2008 23:26