Stofnað 2004

Engin frammistaða

Rétt í þessu er þetta fólk að spila Trivial Pursuit a Næsta bar. Með skelfilegum árangri. Dæmi um spurningar sem þau vissu ekki svörin við:

  • Hvað kallaði Elton John Díönu prinsessu í minningarlagi sínu?
  • Hver skrifaði Fjallkirkjuna?
  • Í hvaða landi er fjölmennasta portúgölskumælandi þjóð heims?

Og ótal aðrar. Þetta eru bara þær sem ég heyrði meðan ég skrifaði þetta. Sjaldan hefur mig langað jafnmikið að blanda mér í borðspil annarra. En í staðinn læt ég mér nægja að smella af ófókusaðri, flasslausri ljósmynd og blogga.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Hérna Óli, þetta er handa þér í næsta Trivial Pursuit:

http://funky16corners.wordpress.com/

Snilld!
29. apríl 2008 01:47 
Anonymous Maggý:
Þú ert líka atvinnubesservisser
2. maí 2008 21:33 
Blogger Alexandra:
Ætlaru ekki að pósta ljóðunum sem þú samdir í teitinu?
4. maí 2008 18:34 
Blogger Óli Sindri:
Ljóðin úr teitinni bíða betri tíma. Jafnvel útgáfu. Þau eru svo snilldarleg.
9. maí 2008 02:18