Eftiröpun
Ég hélt það yrði dálítið gaman að stæla Stormskerið en eftir að hafa lesið hann nokkuð gaumgæfilega aftur í tímann þá fjaraði áhuginn fljótt út. Það er eitthvað svo fyrirsjáanlega vúlgart við smekkleysuna (ég meina, kommon:
ráðherfa) og minnimáttarkenndin er svo öskrandi í undirtónunum að það er ekkert gaman að vera eins og hann.
Það var spurning um að stæla
Jónas.is en hann varð víst fyrri til að stæla
mig ef eitthvað er að marka
þetta.
Annars ætlaði ég að horfa á sjóræningjaútgáfu af Indiana Jones í gær. Var búinn að sækja hana þegar ég fattaði að ég hafði engan áhuga, svo ég henti henni aftur.