Júrótrash
Þá eru slavneskar, varaskeggjaðar kerlingar og hommarnir systur þeirra búin að senda Tinna og Vælu Veinólínu úr landi með maskarann í bakinu. Þau áttu auðvitað aldrei séns. Það er eitthvað einstaklega ósexý við það að sjá pervisinn albinóa spígspora í kring um mömmu sína. Þótt Væla hafi með aðdáundarverðum hætti slegið taktinn í laginu með blakandi bingóvöðvunum dugði það ekki til.
Auðvitað er væntanleg á markað bók um útferðina. Hún ber hið frumlega nafn Tinni í Serbíu. Hér eru sýnishorn úr henni:
