Stofnað 2004

Lúni maðurinn

Þá er þessari þemaviku lokið. Glöggir lesendur hafa auðvitað fyrir löngu áttað sig á að bloggarinn hvers gervi ég brá mér í síðustu 7 daga er enginn annar en Sverrir Jakobsson.

Doddi benti reyndar réttilega á þá meginskyssu mína að halda athugasemdakerfinu opnu, en ég vona að mér fyrirgefist það í ljósi þess að ég svaraði engum athugasemdum í staðinn.

Þessa viku setti ég inn 27 færslur, fékk 3048 heimsóknir og er í augnablikinu í 3. sæti á BloggGáttinni yfir vinsælustu bloggin. Þó er ekki nema tæplega helmingur heimsóknanna þaðan, svo það er ljóst að það þarf ekkert sérlega mikið til að vera meðal þeirra efstu á lista. Ég býst fastlega við að leka aftur niður listann fyrir sunnudagskvöldið.

Annars vil ég nota tækifærið áður en ég fer að sofa úr mér næturvaktina og óska föður mínum til hamingju með 46 árin sem hann fyllir í dag.

Athugasemdir:

Anonymous Nafnlaus:
Ha ? Er hann 46 ára ?? hmm.. Ég hefði kanski átt að afla mér betri upplýsinga, áður en ég sendi honum tölvupóst og óskaði honum til hamingju með 44 ára afmælið :) ´
kv, Bóla
16. maí 2008 11:29 
Anonymous Nafnlaus:
Þið eruð báðir að rugla. Hann er 48 ára, klárlega.

R
16. maí 2008 15:50 
Anonymous Nafnlaus:
Hvaða Sverrir?
16. maí 2008 21:13 
Anonymous Nafnlaus:
Næstu sem koma til greina eru:

Stebbifr
Jónas
katrín.is

Jafnvel meira að segja bloggdrottningin trega, Nanna Katrín Kristjánsdóttir
17. maí 2008 08:12 
Blogger Rassabora:
er það eitthvað djók sem ég fatta ekki að kalla ármann sverri?
26. maí 2008 13:03 
Blogger Óli Sindri:
Tja, ég þori næstum að fullyrða að þú fattar djókið, svo er annað mál hvort þér finnst það fyndið. Það er enginn djúpstæður intellektjúalhúmor þarna að baki, er ég hræddur um.
26. maí 2008 16:29