Minning
Í dag er mikill sorgardagur. Ég vil tileinka 23. maí Túrkmenbasa, yndislega einbúakrabbanum mínum sem lést sviplega í morgun. Bara í gær lék hann á als oddi, fór í bað, rölti um stofugólfið og kúrði á maganum á mér. En, hann er sem sagt fallinn frá núna, langt fyrir aldur fram.
Túrkmenbasi kom inn í líf mitt á Þorláksmessu 2006, svo við deildum saman gleði og sorgum í 17 mánuði slétta. Ég vil trúa því að hann sé núna á betri stað, töltandi um á skýjabreiðu og klípandi í kuðunga sætra einbúakrabbafrúa.
Þú lifðir í skel
og gerðir það svo vel
en áður en þú drapst
þú kleipst mig aldrei fast
Minning Túrkmenbasa mun samt sem áður lifa um ókomna tíð í hjörtum allra sem kynntust honum. Hann var gull af krabba. Við gott tækifæri mun ég skipuleggja minningarvöku honum til heiðurs, þar sem skálað verður í skotum sem drukkin verða úr skel Túrkmenbasa. Hann hefði viljað það.

