Ný félagsrit
Ég hef tekið þá ákvörðun að safna saman öllum bloggfærslum mínum síðustu viku, prenta út, hefta saman og selja þeim sem áhuga hafa fyrir sanngjarnt verð.
Nú gætu sumir hugsað sem svo að þeir sem mögulega gætu haft áhuga á að eiga útprentuð eintök af bloggfærslum mínum gætu vel prentað þau sjálfir, án milliliða og aukakostnaðar. En þeir væru þá að líta framhjá eftirfarandi staðreynd:
Allt efni á þessari síðu er verndað af ákvæðum höfundalaga. Sérhver eintakagerð eða dreifing þess (t.d. í prentmiðlum) er óheimil nema til komi samningur við höfund eða rétthafa höfundarréttar. Notkun sem brýtur í bága við lög eða samninga getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.
Ég hef reyndar ákveðið að útvaldir velunnarar geti fengið útprentið gefins (jafnvel áritað). Ég veit um nokkra þeirra, en það væri ekki úr vegi að þeir minntu samt á sig, t.a.m. með tölvupósti.