Snert hörpu mína
Mér þykir sérkennileg árátta að eyða út öllum færslum sínum þegar maður í móki eða lyfjaniðursveiflu ákveður að hætta að blogga. Sérstaklega í ljósi þess að þetta er allt varðveitt, m.a. af Google. Ætli það sé lenska meðal rithöfunda að brenna bókasafnið sitt þegar þeir setjast í helgan stein? Reyndar er þetta stórgölluð samlíking. Að líkja bloggurum við rithöfunda er eins og að líkja Gettu betur við QI.