Stofnað 2004

Engin frammistaða

Rétt í þessu er þetta fólk að spila Trivial Pursuit a Næsta bar. Með skelfilegum árangri. Dæmi um spurningar sem þau vissu ekki svörin við:

  • Hvað kallaði Elton John Díönu prinsessu í minningarlagi sínu?
  • Hver skrifaði Fjallkirkjuna?
  • Í hvaða landi er fjölmennasta portúgölskumælandi þjóð heims?

Og ótal aðrar. Þetta eru bara þær sem ég heyrði meðan ég skrifaði þetta. Sjaldan hefur mig langað jafnmikið að blanda mér í borðspil annarra. En í staðinn læt ég mér nægja að smella af ófókusaðri, flasslausri ljósmynd og blogga.

Hringskyrfi

Ég var búinn að gleyma hvað það er þægilegt að taka sér frí frá bloggi. Svo ég held ég haldi því bara áfram um sinn.

Ég lýsi hins vegar frati á stýrikerfi sem ákveða að endurræsa sig sjálf um miðja nótt eftir einhverja heimskulega öryggisuppfærslu og eyðileggja þar með Illustrator skjal sem ég var að vinna í og ekki búinn að vista nýlega. Fari þau fjandans til. Það styttist í að ég kaupi mér Makka aftur.

Fyrsti dagur fjórðu vik... öhh... mánaðar

Fyrsti apríl er alltaf jafn frumlegt fyrirbæri. Verðlaunin fyrir besta gabbið fær samt Ríkisskattstjóri rétt áðan fyrir að reyna að telja mér trú um að ég skuldi tæpan áttaþúsundkall í Framkvæmdasjóð aldraðra. Haha. Nokkuð sniðugt.

Þar fyrir utan tókst ekki neinum að láta mig hlaupa eitt né neitt í tilefni dagsins. Á laugardagskvöldið síðasta hljóp ég hins vegar — niður Bankastrætið til að reyna að ná leigubíl — þar til ég hrasaði og flaug á andlitið. Nú skarta ég litríkum mörðum puttum, svöðusári á hægra handarbaki (hvar glöggir lesendur átta sig á að var sár fyrir), fleiðri á nefbroddi, þrefaldri efri vör og skemmtilegri blóðugri rönd niður hökuna þar sem áður var skegg. Það skegg liggur nú á Bankastrætinu. Skemmtilegasti áverkinn er samt tvímælalaust samsvarandi rönd á efri vörinni, sem í fjarlægð (og ákveðinni nálægð líka) lítur út alveg eins og Hitlers-skegg. Enn skemmtilegra var að uppgötva það áðan eftir að ég kom úr stuttum göngutúr í sjoppuna að hárgreiðslan mín var líka í svipuðum anda — skipting hægra megin og lokkurinn greiddur til hliðar. Ég held að spássitúrinn minn um fjölmenningarlegt Breiðholt í gervi Foringjans hljóti að hafa verið góð hugmynd.

Annars var ég að hugsa um að láta berast út fréttir af ótímabæru andláti mínu í tilefni dagsins en féll svo frá (pun intended) þeirri áætlun. Það trúir hvort eð er enginn slíkum fréttum á fyrsta apríl svo ég bíð með þann hrekk til betri tíma.