Stofnað 2004

Skil ekki

Þetta hatur út í IMF. Þetta er kannski ekki hressasti félagsskapur í heimi, en samt.

Moggabloggið vísiterað

Færslurnar sem tengdar eru þessari frétt eru eitthvað svo dæmigerðar og lýsandi fyrir Moggabloggið í heild sinni. Athugasemdirnar eru af svipuðum gæðastaðli.

Þetta telst varla sem íslenskt orð. Hvernig væri "páfi heimsækir afríku" ? Lagið þetta strax hálfvitar.

þetta hljómar eins og einhver þroskaheftur einstaklingur hafi þítt þetta uppúr ælupolli

Vísiterar???? Er það íslenskt orð?

Hvaða fáviti skrifar þessa grein? Er enginn prófarkalesari þarna hjá þeim? Hvurslags íslenska er þetta? HEIMSÆKIR!!!!!!

Morgunblaðið hefur alla tíð lagt mikinn metnað við málfar sitt... ekki lengur greinilega. Vísiterar??? Kannski "skeður" eitthvað á meðan páfinn "vísiterar" Afríku, "lille skattið" hellir kannski niður á "löberinn" hjá einhverjum leiðtoganum, eða klessir "drossíunni" á eitthvað "slotið" þarna úti. Kannski hefði fyrirsögnin átt að vera - Páfi droppar við í visit og chillar með heaví flottum dúddum í Afríku -

Fáránlegt

Já, fáránlegt, indeed.

Ég er með lausnina!

Af hverju prentum við ekki bara meiri peninga?

Steinn Bankarr

Þetta er stórmerkileg uppgötvun.

Það er ótrúlegt hvað kvæðið heldur sér þegar skipt er út orðinu banki fyrir orðið draumur

Ég man ekki til þess að orðið banki hafi verið í upphaflega kvæðinu, en það er allavega þjóðþrifaverk og hárrétt hjá ÁBS að skipta því út fyrir orðið draumur í þessu tilfelli. Nema hann hafi meint þetta öfugt.

Önnur stórmerkileg tilviljun er að skipta Villa litla út fyrir banka í meistaraverkinu Á kránni með Mánum. Óhugnanlega viðeigandi.

Svo getum við líka leikið okkur við að skipta út nafninu Ágúst fyrir orðið banki. En það er reyndar ekki nærri jafn viðeigandi. Fullt af fólki á nefnilega bankabækur.