Stofnað 2004

Hlutir sem ég hef rekist á á Netinu þegar ég ætti að vera að gera eitthvað annað

Þetta er góð leið til að borða ódýrt og lífrænt í kreppunni.

Hér eru áhugaverðar einnarmálsgreinarsögur. Jónas Kristjánsson meets PostSecret.

Vantrúarseggjum gæti þótt þetta skondið.

Ég hef ekki hugmynd um hvað þetta er.

Guð á Facebook

Bestu sálnaveiðararnir nota lingó sem markhópurinn skilur. Nú er það Facebook sem trekkir að.

Ég held að Guð væri óþolandi Facebook vinur og ég myndi aldrei samþykkja hann. Nýjar status-uppfærslur á sekúndubrotsfresti þar sem hann er alls staðar að vasast í öllu. Sífellt bjóðandi öllum á atburði og messur, sendandi kannanir til að tékka hvort maður sé líkari Kain eða Abel og búandi til aðdáendasíður um sjálfan sig og Sússa. Svo myndi hann pottþétt alltaf vinna mann í Scrabble. Leiðindagumpur.

Ritstjórn DV er stórkostleg

Ekkert skil ég í því að taka ekki meira mark á DV sem fjölmiðli svona almennt.

Svo er samkeppni þeirra við Moggabloggið hreint æðisleg. Burtséð frá þeirri grundvallarákvörðun að rétt sé að keppa við kryppling á borð við Moggabloggið ákváðu þeir að gera það á forsendum þess síðarnefnda. Best var að tæla til sín bloggkanónur á borð við Jens Guð, sem síðan tók til við að halda áfram að blogga á Moggablogginu en afrita færslurnar sínar yfir á DV bloggið. Það er einmitt það sem bloggsamfélagið íslenska þarf á að halda; Jens Guð í tvíriti.

En þeir sáu svo að það var ekki líklegt til langframavinsælda. Svo Eiríkur Jónsson var grafinn upp og fenginn til að blogga með hástöfum. Tvöfaldur Jens Guð og hástafablogg Eiríks. Það er blogg-arfleifð DV. En þeir hafa þó alltaf þennan fína fréttavef.