Stofnað 2004

Matareitrun

Meðfylgjandi mynd sýnir ágætlega angistina, ömurðina og þverrandi lífsviljann sem fylgir matareitrun. Ég fór sem sagt á tónleika með Megasi og Senuþjófunum um þarsíðustu helgi. Vart í frásögur færandi eitt og sér; vissulega stóð Megas sig vel í að lesa upp af textaskjánum og jú, hljómsveitin var næsta óaðfinnanleg.

Það sem mesta athygli vakti gerðist hins vegar ekki fyrr en sólarhring síðar, eða akkúrat um það leyti sem e-coli er búið að fjölga sér eins og kanínur. Allir sem ákváðu að snæða máltíð á Rósenberg byrjuðu sem sagt að æla lifrum og allt niður í miltu. Á sama andartaki. Á mismunandi heimilum.

?Ég er ekki klígjugjarn að upplagi, né viðkvæmur. En þetta er með því versta sem ég hef lent í. Verra en banvænn B-12 skortur, mun verra en blóðeitrun. Ég hugga mig bara við að Jón Baldvin og Gísli Marteinn voru að borða þarna sama kvöld.

Óbrigðult ráð til að spara blek og prentsvertu!

Óbrigðult ráð væri að sleppa því að prenta helvítis skjalið út. Hver þarf útprentanir nú til dags? En sé það ekki kostur er spurning að athuga Ecofont, er það ekki?

Neytendafrömuðurinn Dr. Gunni skrifaði fyrir rúmum mánuði um Ecofont í Neytendahornið sitt. Ecofont er viðurstyggileg leturgerðarómynd sem á að spara blek eða duft við prentun, hugarfóstur hollensks fyrirtækis.

Það fyrsta sem maður tekur eftir er að sjálfsögðu hversu óhemjuljótt letrið er. Það er vegna þess að það er ekkert annað en Vera Sans, sans-serif letur sem var forljótt til að byrja með, sem búið er að fylla af litlum götum. Gott og vel, en það sparar blek, spornar gegn gróðurhúsaáhrifum og bjargar litlum loðnum dýrum, svo maður sættir sig við það, ekki satt?

Bara ef það væri svo gott. Ég hafði hugsað mér að gera einfalda tilraun til að athuga hvort það sparaði í raun og veru blek. Mér til mikillar ánægju komst ég að því að einhver hefur þegar gert þá tilraun fyrir mig. Og niðurstaðan er sú sem ég bjóst við. Ef við berum Ecofont t.d. saman við Times, sem er ábyggilega vinsælasta prentletur heims (enda sjálfgefið letur í Microsoft Word), er niðurstaðan sú að Ecofont notar 20% meira blek!

Munurinn er jafnvel enn meiri ef við tölum um aðrar vinsælar prentleturgerðir á borð við Garamond, eða 30%.

Til viðbótar við þetta er Ecofont letrið óvenjufyrirferðarmikið í samanburði við þessar vinsælu serif-leturgerðir. Hver stafur settur með Ecofont letri er breiðari en sami stafur settur með fyrrnefndum leturgerðum. Sem þýðir að pappírsnotkun eykst. Um allt að 20%.

Með því að breyta letrinu á ritvinnsluskjalinu úr Times New Roman yfir í þennan frábæra Ecofont fyrir prentun ertu sem sagt að nota 20% meira blek og 20% meira af pappír. Og þú ert að prenta út viðurstyggilega ljótt skjal með ógeðslegri leturgerð.

Frábært!