Slímkenndur hugur
Ég hef verið veikur í vel á aðra viku. Fyrir utan að drekka rommblandað kakó og hósta upp ókennilegu slími hef ég lítið gert. Jú, ég hef horft á sjónvarp. Það er jafnnýtt fyrir mér og slímið, þar sem ég nenni yfirleitt aldrei að horfa á sjónvarp núorðið. Eitt af því sem ég horfði á um helgina var myndin A Beautiful Mind. Eina ferðina enn.
Tilfinningarúnk. Vann til fjölda Óskarsverðlauna, grætir húsmæður og fær fólk til jesúsa sig og tala á innsoginu um geðsjúkdóma. Verst að hún er uppspuni. Aðalatriði myndarinnar er að John Nash á erfitt með að gera greinarmun á raunverulegu fólki og ímynduðu. John Nash í myndinni er hins vegar ímyndaður. Sá raunverulegi sá aldrei ofsjónir, heyrði ekki ofheyrnir fyrr en seint á ævinni. Hann var bara ósköp venjulegur paranojaður skitsófreni sem hélt að heimurinn væri á eftir sér. Flúði til Evrópu en var sendur heim. Hélt framhjá kærustunni sinni með öðrum karlmanni. Giftist henni í kjölfarið af neyð frekar en ást, til að sanna fyrir umheiminum að hann væri gagnkynhneigður. Hún skildi svo við hann og kom ekki aftur fyrr en eftir að hann varð hrumur öldungur með fulla vasa af Nóbelsverðlaunafé.
Ekki einu sinni dramatíska atriðið, þegar fólk leggur pennana sína á borðið hjá honum, á stoð í raunveruleikanum. Slíkur siður hefur aldrei verið til innan Princeton.
En hann er samt helvíti góður í heimasíðugerð. Hérna er heimasíðan hans. Og hérna er afrit af ritgerðinni sem hann skrifaði um leikjakenninguna í Princeton. Ekki einu sinni hún er neitt lík þeirri sem var í myndinni.
Helvítis Hollywood.
Stephen Hawking er einskis virði!
Þetta finnst mér fyndin gagnrýni á ríkisrekna heilbrigðisþjónustu:
People such as scientist Stephen Hawking wouldn't have a chance in the U.K., where the National Health Service would say the life of this brilliant man, because of his physical handicaps, is essentially worthless.
Svona aðallega vegna þess að Stephen Hawking er fæddur, uppalinn og hefur lifað alla sína ævi í Bretlandi. Sem er líklega — vonandi — óþarfi að taka fram, en eftir að hafa eytt sumrinu í að lesa moggablogg og eyjukomment er ég ekki viss. Alls ekki.
Fyndni
Henry Þór Baldursson. Aldrei fyndinn, vonlaus í stafsetningu, aldrei fyndinn. Já, hann er svo ófyndinn að ég sagði það tvisvar. En hann er helvíti góður í að stela ljósmyndum og smeygja þeim í gegnum hörmulega Photoshop-filtera. Það má hann eiga.
Matareitrun
Meðfylgjandi mynd sýnir ágætlega angistina, ömurðina og þverrandi lífsviljann sem fylgir matareitrun. Ég fór sem sagt á tónleika með Megasi og Senuþjófunum um þarsíðustu helgi. Vart í frásögur færandi eitt og sér; vissulega stóð Megas sig vel í að lesa upp af textaskjánum og jú, hljómsveitin var næsta óaðfinnanleg.
Það sem mesta athygli vakti gerðist hins vegar ekki fyrr en sólarhring síðar, eða akkúrat um það leyti sem e-coli er búið að fjölga sér eins og kanínur. Allir sem ákváðu að snæða máltíð á Rósenberg byrjuðu sem sagt að æla lifrum og allt niður í miltu. Á sama andartaki. Á mismunandi heimilum.
?Ég er ekki klígjugjarn að upplagi, né viðkvæmur. En þetta er með því versta sem ég hef lent í. Verra en banvænn B-12 skortur, mun verra en blóðeitrun. Ég hugga mig bara við að Jón Baldvin og Gísli Marteinn voru að borða þarna sama kvöld.
Óbrigðult ráð til að spara blek og prentsvertu!
Óbrigðult ráð væri að sleppa því að prenta helvítis skjalið út. Hver þarf útprentanir nú til dags? En sé það ekki kostur er spurning að athuga Ecofont, er það ekki?
Neytendafrömuðurinn Dr. Gunni skrifaði fyrir rúmum mánuði um Ecofont í Neytendahornið sitt. Ecofont er viðurstyggileg leturgerðarómynd sem á að spara blek eða duft við prentun, hugarfóstur hollensks fyrirtækis.
Það fyrsta sem maður tekur eftir er að sjálfsögðu hversu óhemjuljótt letrið er. Það er vegna þess að það er ekkert annað en Vera Sans, sans-serif letur sem var forljótt til að byrja með, sem búið er að fylla af litlum götum. Gott og vel, en það sparar blek, spornar gegn gróðurhúsaáhrifum og bjargar litlum loðnum dýrum, svo maður sættir sig við það, ekki satt?
Bara ef það væri svo gott. Ég hafði hugsað mér að gera einfalda tilraun til að athuga hvort það sparaði í raun og veru blek. Mér til mikillar ánægju komst ég að því að einhver hefur þegar gert þá tilraun fyrir mig. Og niðurstaðan er sú sem ég bjóst við. Ef við berum Ecofont t.d. saman við Times, sem er ábyggilega vinsælasta prentletur heims (enda sjálfgefið letur í Microsoft Word), er niðurstaðan sú að Ecofont notar 20% meira blek!
Munurinn er jafnvel enn meiri ef við tölum um aðrar vinsælar prentleturgerðir á borð við Garamond, eða 30%.
Til viðbótar við þetta er Ecofont letrið óvenjufyrirferðarmikið í samanburði við þessar vinsælu serif-leturgerðir. Hver stafur settur með Ecofont letri er breiðari en sami stafur settur með fyrrnefndum leturgerðum. Sem þýðir að pappírsnotkun eykst. Um allt að 20%.
Með því að breyta letrinu á ritvinnsluskjalinu úr Times New Roman yfir í þennan frábæra Ecofont fyrir prentun ertu sem sagt að nota 20% meira blek og 20% meira af pappír. Og þú ert að prenta út viðurstyggilega ljótt skjal með ógeðslegri leturgerð.
Frábært!
Franz Kafka og tvíkynhneigðin
Þemavika! Í staðinn fyrir hið sívinsæla blogglausa þema, sem ég hef fylgt af alúð síðustu mánuði, ætla ég frá og með morgundeginum að blogga bara um óáhugaverða og handahófskennda hluti. Í viku eða svo.
Lítil breyting, gæti einhver sagt. Fari sá norður og niður sem.
Fríar glósur!
Það sem ég ýjaði að í síðustu færslu var ekki merkilegt. Jú, reyndar var andabringan alveg merkilega góð. En það er svo skemmtilegt að ýja. Reyndar dettur mér bara eitt í hug sem er skemmtilegra, og það er þið-vitið. Hinu miklu námsbreytingar eru annars ekki meiri en þær að ég ákvað af ýmsum ástæðum (meira ýjjjj) að skrá mig úr miðaldabókmenntakúrsi að sinni. En til að öll vinna mín það sem af er önninni fari ekki algjörlega til spillis hef ég af hjartagæsku ákveðið að birta hér og nú glósurnar mínar úr kúrsinum, svo þær geti nýst öðrum stúdentum til góðra verka.
Það getur svo bara meira en verið að seinna birti ég hina síðuna líka.
Listin að ýja
Ákveðin tegund af bloggum finnst mér áhugaverð. Í öðrum fréttum er ég að hugsa um að gera breytingar á námi mínu, örlitlar. Það kemur til af ýmsu. Þetta ákvað ég um það bil endanlega í kvöld meðan ég borðaði líkamshluta af tiltekinni fuglategund.
Á ríkisstjórnarfundi (örleikrit)
Hún: „Þvílík ósvífni! Þarna undir Svörtuloftum situr maður sem telur sig einræðisherra yfir bankamálum landsins! Veruleikafirrtur og valdasjúkur! Mig auma! Okkur öll aum!”
Hann: „Satt og rétt. Ástandið er óviðunandi. Hvað leggur þú til, mín kæra? Hvernig bindum við enda á slíka óafsakanlega einræðistilburði?”
Hún: „Ég er með hugmynd. Í staðinn fyrir að púkka upp á dreifða stjórn, öldungaráð nokkurra siðblindra manna — sannkallaða gróðrastíu fyrir þessa spillingu — þá leggjum við hana niður og sameinum í eitt embætti sem hefur völd sem jafnast á við alla heilu stjórn núverandi spillingarfyrirkomulags! Einn í stað margra! Niður með einveldið!”
Hann: „Þjóðráð! Hmm. Það er samt eitthvað sem er að plaga mig við stórgóða tillögu þína. Eins og einhver örlítill galli — sem ég kem bara ekki fingri á...”
Hún: „Ég veit hvað þú ert að hugsa; við förum auðvitað fram á annars konar menntun en Hinn illi herra hefur, til öryggis. Hagfræðimenntun til dæmis. Hagfræði sem fræðigrein hefur einmitt verið öll að koma til og sanna sig undanfarið sem sannkölluð guðsgjöf fyrir heiminn.”
Hann: „Þarna kom það! Þetta er skothelt. Djöfull erum við góð í þessu. Við ættum að leggja þennan ríkisstjórnarbisniss fyrir okkur, mín kæra.”
Hún: „Mæltu manna heilastur! Ekki búin að vera í bransanum lengi saman og við erum strax búin að uppræta þennan helvítis ósið sem Flokkur hins illa hefur tamið sér varðandi pólitísk afskipti af mannabreytingum, ráðningum og brottrekstrum. Það var sannarlega kominn tími á okkar fersku sýn.”
Tjaldið fellur.
Joaquin Phoenix
Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé hann sýna leikræna tilburði.* Yfirleitt er hann óþolandi og myndskemmandi. Reyndar er Letterman ekki í neinu uppáhaldi hjá mér heldur. Né sjónvarpsþættir yfir höfuð. Hvað þá YouTube. Eða blogg.
Í öðrum fréttum: Ég er plagaður af kúkaflensu sem má fara norður og niður sem fyrir mér. Hún hefur ef til vill áhrif á skap mitt.
* Á þeim 3 mínútum sem tók mig að skrifa þessa færslu var myndbandinu eytt af YouTube af höfundarréttarástæðum. Ég sagði ykkur að YouTube væri ömurlegt. Þetta var sem sagt Joaquin Phoenix í þætti David Letterman, 12. febrúar 2009. Þeir sem hafa áhuga á að sjá þetta geta fundið annað eintak sjálfir, ég er farinn að snýta mér.